*** í ljósi aðstæðna eru allar okkar ferðir í endurskoðun ***
Næsta ferð: áætluð 25. júlí – 1. ágúst 2022
Áætlað verð 2022: Liggur fyrir ca. 1. sept. 2021.
Innifalið í verði:
Flug til MAN með Icelandair, flugv.skattar, flugv.akstur erlendis, gisting, fullt fæði (morgunmatur, hádegis- og kvöldverður), Bobby Charlton skólinn, skoðunarferð á leikvang og íslensk fararstjórn.
Áætlað ferðaplan:
Mánudagur 25. júlí: Icelandair frá KEF -Manchester
Mánudagur 01. ágúst: Icelandair frá Manchester til KEF
Gisting:
Gist er á Travelodge Manchester Didsbury Hotel. Herbergin eru 4ra manna. Nánari upplýsingar um hótelið má sjá HÉR.
Einnig fylgir með rúmfatnaður, sjónvarp, baðherbergi og handklæði, fullt fæði (þrjár máltíðir á dag)
Þjálfarar:
Þjálfarar í Knattspyrnuskóla Bobby Charlton starfa hjá virtum knattspyrnufélögum í Englandi og Wales, m.a. hjá kvennaliði Swansea, Manchester City, Blackburn Rovers o.fl. Þeir eru með gott tengslanet og með sambönd við fjölmörg félög á Bretlandseyjum.
Leikmenn sem sýna umtalsverða hæfileika og metnað, geta átt von á því að breskir atvinnuklúbbar vilji bjóða þeim að koma aftur til Englands til reynslu, ef forráðamenn eru því samþykir.
Mjög góð gisti-, fræðslu- og íþróttaaðstaða.
Keppt er í hæfileikakeppni skólans þar sem þátttakendur fá tækifæri til að bæta met David Beckham.
Farið er í skoðunarferð á leikvöll í nágrenninu, yfirleitt Anfield eða Old Trafford. Stundum er farið á völlinn, en það fer eftir framboði á góðum leikjum í Manchester eða nágrenni.
Íslenskir fararstjórar fylgja hópnum alla ferðina.
Heimasíða skólans http://www.bcssa.co.uk fyrir frekari upplýsingar um skólann sjálfann.
Við erum líka á Facebook: https://www.facebook.com/bobbycharltonisland/
HÉR MÁ SJÁ VIDEO FRÁ SKÓLANUM.
HÉR MÁ SJÁ VIDEO FRÁ FERÐ OKKAR Í SKÓLANN 2015.
MYNDIR ÚR FERÐ OKKAR 2015 MÁ SJÁ HÉR.
Um 2.500 ánægð íslensk ungmenni síðan 1994!
Fótbolti er forvörn